GR: Ingi Rúnar tekur við afreksstarfinu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur
Undanfarin átta ár hafa Golfklúbbur Reykjavíkur og Progolf ehf. átt í samstarfi um rekstur Bása og íþróttastarf klúbbsins. Nú í haust var gert samkomulag um lok samstarfsins og tók Golfklúbbur Reykjavíkur yfir rekstur Bása og íþróttastarfsins.
Nú hafa þrír þjálfarar verið ráðnir til starfa fyrir Golfklúbb Reykjavíkur.
David Barnwell, PGA þjálfari, yfirþjálfari barna- og unglingastarfs.
Ingi Rúnar Gíslason, PGA þjálfari, yfirþjálfari meistaraflokka.
Snorri Páll Ólafsson, nemandi á lokaári PGA skólans, ungmennaleiðtogi.

F.v. Snorri Páll Ólafsson, Garðar Eyland framkvæmastjóri GR, Ingi Rúnar Gíslason og David Barnwell. Mynd: GR.
Golfklúbbur Reykjavíkur er afar ánægður með þann hóp sem hefur tekið að sér að leiða íþróttastarfið inn í framtíðina. Starfið er afar fjölbreytt og umfangsmikið. Mikil gróska er í barna- og unglingastarfinu þar sem unnið er að kynningu golfíþróttarinnar fyrir klúbbmeðlimum framtíðarinnar og þeim veitt þjálfun í undirstöðuatriðum golfsins. Þeim sem ákveða að leggja golf fyrir sig sem keppnisíþrótt er hjálpað til að berjast til afreka í íþróttinni. Í því sambandi má nefna að tveir leikmanna okkar berjast um þessar mundir við að komast inn á mótaröð þeirra bestu, átta kylfingar eru í háskólanámi með golfi í Bandaríkjunum, fjöldi unglinga hafa verið valdir í afreks- og framtíðarhópa Golfsambands Íslands fyrir næsta keppnistímabil og margir banka þar fast á dyrnar.
Framtíðin er björt og verður gaman að fylgjast með þróun starfsins undir forystu þessara góðu manna.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
