Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2016 | 16:15

GR: Grafarholtið lokar f. veturinn

Mánudaginn 24. október mun Grafarholtsvöllur loka fyrir veturinn.

Mikil úrkoma síðustu vikurnar hafa gert það að verkum að völlurinn er orðinn mjög blautur og í raun hættulegur á sumum stöðum.

Vallarstarfsmenn GR þurfa því að hefja undirbúning á vellinum fyrir veturinn og hefst sú vinna á morgun með því að gataðar verða flatir í Grafarholti.

Korpan verður áfram opin fyrir félagsmenn GR eins lengi og mögulegt er og má gleðjast yfir því. Umferð golfbíla er þó bönnuð en Thorsvöllur er opinn og þar er golfbílaumferð leyfð.

GR vill biðja þá sem spila á völlunum að huga vel að því að laga torfuför á brautum og boltaför á flötum eftir sig. Með þessu er völlunum hjálpað að undirbúa sig betur fyrir komandi vetur.

Heimild: GR