Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2012 | 13:40

GR: Golfdagur í skammdeginu

Að Korpúlfsstöðum er nú haldinn „Golfdagur í Skammdeginu“ en þar sýna ýmsir aðilar golfvörur ýmiskonar auk þess sem þekkt nöfní golfheiminum íslenska flytja fyrirlestra.  T.a.m. verður kynntur fatnaður frá Cervó og Poodle vörurnar frá Icegolf. Hole in One golfbúðin góðkunna sýnir nýjustu kylfur og aðrar golfvörur og annar eigandi búðarinnar heldur m.a. fróðlegan fyrirlestur um hvað hafa beri í huga þegar dræver er valinn. Til þess að komast á Facebooksíðu „Golfdags í skammdeginu“ smellið HÉR: 

Golfdagur í skammdeginu stendur frá kl. 13-17.  Þannig að nú er um að gera að drífa sig upp að Korpúlfsstöðum!