Dagbjartur Sigurbrandsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2019 | 00:01

GR: Dagbjartur á besta skorinu (68) á Opnunarmóti Korpu!

Korpúlfsstaðavöllur var baðaður sólargeislum þegar fyrstu kylfingar mættu til leiks í Opnunarmót Korpu í gær, 1. maí og lék veðrið við kylfinga frameftir degi. Ræst var út frá kl. 08-15 og var þátttaka í mótinu góð 173 skráðir – en 170 luku keppni þar af 31 kvenkylfingur, en af þeim stóð Pamela Ósk Hjaltadóttir sig best í punktakeppninni (var með 38 punkta) og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir stóð sig best í höggleiknum; lék Korpuna á 75 höggum!  Völlurinn opnaði fyrr en venja er þetta árið og lofar ástand hans góðu fyrir komandi tímabil. Dagbjartur Sigurbrandsson lauk hringnum á besta skorinu í mótinu þ.e. 4 undir pari, 68 glæsihöggum.

Korpan með SÁL = Sjóinn – Ánna – Landið. Mynd: Golf1

Úrslit í Opnunarmóti Korpu 2019 urðu annars þessi:

Forgjöf 0 – 14
1. sæti: Arnar Þór Gíslason – 40 punktar
2.sæti: Elvar Már Kristinsson – 39 punktar
3.sæti: Jóhann Gunnar Kristinsson – 38 punktar

Forgjöf 14,1 – og hærra
1.sæti: Hjalti Kristján Hjaltason – 44 punktar
2.sæti: Vigfús Geir Júlíusson – 42 punktar
3.sæti: Gísli Jónsson – 40 punktar

Besta skor: Dagbjartur Sigurbrandsson – 68 högg (-4)

Nándarverðlaun
3. braut: Arnar Ottesen, 3,05m
6. braut: Kristmundur Eggertsson 2,30m
9. braut: Pétur Geir Svavarsson, 1,30m
13. braut: Elvar Már Kristinsson, 99cm
17. braut: Ásgeir Ingvarsson, 2,84m

GR þakkar keppendum öllum fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum í mótinu til hamingju með sinn árangur. Hægt verður að nálgast vinninga á skrifstofu klúbbsins eftir kl. 13:00 mánudaginn 6. maí.

Í aðalmyndaglugga: Dagbjartur Sigurbrandsson, GR. Mynd: Golf 1