Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2017 | 07:00

GR: Böðvar Bragi m/vallarmet af bláum teigum á Korpunni

Á þriðjudag, 14. ágúst 2017,  var leikin 10. umferð í Icelandair Cargo – mótaröð barna og unglinga en sú mótaröð er haldin fyrir þá sem æfa hjá klúbbnum og hefur verið leikin alla þriðjudaga í sumar.

Sjórinn/Áin var sá hluti vallar sem leikinn var á þriðjudag og gerði Böðvar Bragi Pálsson sér lítið fyrir og setti vallarmet af bláum teigum en hann lék hringinn á 66 höggum, sem er 6 höggum undir pari vallar.

Til fróðleiks má geta þess að Böðvar átti sex fugla, einn örn og tvo skolla á hringnum.

Golf 1 óskar Böðvari Braga til hamingju með þetta flotta vallarmet!!!!