Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 05:00

GR: Anna María, Halla Björg, Óttar Helgi og Rúnar Óli sigruðu á Opna TaylorMade/Adidas

Fyrsta opna mót sumarsins, Opna TaylorMade/Adidas mótið í samvinnu við Örninn Golf, fór fram í gær, fimmtudaginn 29. maí í blíðskaparveðri á Korpúlfsstaðavelli. Alls tóku 171 kylfingur þátt í mótinu. Leikin var punktakeppni sem og höggleikur í þremur flokkum: Almennur flokkur karla, almennur flokkur kvenna og höggleikur karla með forgjöf 4,4 og lægri. Samhliða voru veitt verðlaun fyrir besta skor kvenna og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins.

Helstu úrslit voru eftirfarandi:

Punktakeppni
Almennur flokkur karla

1. sæti:  Óttar Helgi Einarsson GKG – 41 punktur
2. sæti:  Ragnar Baldursson GR – 40 punktar (19 punktar á seinni 9)
3. sæti:  Jón Ásgeir Ríkarðsson GK  – 40 punktar (18 punktar á seinni 9)

Almennur flokkur kvenna
1. sæti:  Anna María Sigurðardóttir GO – 40 punktar
2. sæti:  Rakel Kristjánsdóttir GR – 38 punktar
3. sæti:  Oddný Sigsteinsdóttir GR – 35 punktar

Höggleikur
Höggleikur karla með forgjöf 4,4 og lægri

1. Rúnar Óli Einarsson GKB – 73 högg
2. Haraldur Franklín Magnús GR – 74 högg
3. Andri Þór Björnsson GR – 75 högg

Höggleikur kvenna
1. Halla Björk Ragnarsdóttir GR – 78 högg

Nándarverðlaun:

13. braut: Ragnar Baldursson GR – 77 cm
17. braut: Jónas Hjartarson NK – 2,40 metrar
22. braut: Eiríkur Þór Eiríksson – GOS 1,21 metrar
25. braut: Oddný Sigsteinsdóttir GR – 61 cm

Verðlaunahafar skulu nálgst verðlaun sín í Örninn Golfverslun að Bíldshöfði 20 frá og með föstudeginum 30. maí. Opnunartími er eftifarandi: Virka daga frá 10:00 til 18:00 og á laugardögum er opið frá kl.11:00 til 16:00. Lokað er á sunnudögum.