Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2012 | 10:00

GP: Brynja og Skjöldur eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Patreksfjarðar 2012

Klúbbmeistarar Golfklúbbs Patreksfjarðar 2012 eru Skjöldur Pálmason og Brynja Haraldsdóttir.

Brynja Haraldsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GP 2012. Mynd: Í einkaeigu.

Í ár voru 11 þátttakendur í meistaramótinu. Spilaðir voru 2 hringir.  Skjöldur lék á samtals 174 höggum (85 89) og átti 8 högg á Kristinn Ólafsson, sem varð í 2. sæti.

Brynja Haraldsdóttir, klúbbmeistari kvenna í Golfklúbbi Patreksfjarðar spilaði Vesturbotnsvöll á 182 höggum (94 88) og átti 1 högg á Björgu Sæmundsdóttur, sem varð í 2. sæti í kvennaflokki og hefir keppni milli þeirra því verið spennandi.

Úrslit í Meistaramóti Golfklúbbs Patreksfjarðar 2012 er eftirfarandi:

Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 H2 Alls Mismunur
1 Skjöldur Pálmason GP 12 F 42 47 89 17 85 89 174 30
2 Kristinn Ólafsson GP 16 F 45 44 89 17 93 89 182 38
3 Brynja Haraldsdóttir GP 17 F 41 47 88 16 94 88 182 38
4 Björg Sæmundsdóttir GP 13 F 42 44 86 14 97 86 183 39
5 Jónas Þrastarson GP 22 F 42 48 90 18 95 90 185 41
6 Einar Þorfinnsson GP 29 F 49 44 93 21 93 93 186 42
7 Bára Margrét Pálsdóttir GP 19 F 52 50 102 30 93 102 195 51
8 Anna Jensdóttir GP 27 F 50 51 101 29 101 101 202 58
9 Stefán Dagur Jónsson GP 29 F 60 74 134 62 134 134 62
10 Sigurður V Viggósson GP 24 F 55 54 109 37 99 109 208 64
11 Magnús Arnar Sigurðarson GP 32 F 59 50 109 37 105 109 214 70