GOS: Af aðalfundi 2. des s.l. – Stjórnin kjörin áfram – Breytingar á félagsgjöldum
Aðalfundur GOS fór fram í Golfskálanum miðvikudaginn 2. desember 2015.
Stjórn GOS var kosin áfram með dynjandi lófaklappi en hana skipa:
Ástfríður M Sigurðardóttir formaður,
Svanur Geir Bjarnason ritari,
Helena Guðmundsdóttir gjaldkeri,
Halldór Morthens meðstjórnandi,
Axel Óli Ægisson meðstjórnandi.
Varamenn: Bergur Sverrisson og Páll Sveinsson nýr inn.
Hagnaður var á rekstri GOS á síðasta starfsári uppá kr. 7,013,440.- fyrir afskriftir og vaxtagjöld. Tekjur klúbbsins á þessu ári voru kr. 57,862,630,- en tekjur klúbbsins hafa hækkað gríðarlega síðustu ár og má til samanburðar nefna að árið 2011 voru tekjur klúbbsins kr. 25,508,829,-.
Rekstrargjöld með afskriftum og vaxtagjöldum voru kr. 56,979,312,-
Hagnaður var þegar búið að er taka alla liði inn 951,287,-
Skuldir GOS lækkuðu um 5,159,900,-
Rekstrartekjur urðu kr. 57.862.633,-
Rekstrargjöld urðu kr. 50.849.193,-
Fjarmagnstekjur/gjöld urðu kr. -1.802.427,-
Hagnaður fyrir afskriftir varð 7.013.440,-
Hagnaður ársins eftir afskriftir og fjármagnsliði varð kr. 951.287,-
Eignir eru kr. 41.714.050,-
Langtímaskuldir eru kr. 12.705.119,-
Skammtímaskuldir eru kr. 4.317.595,-
Eigið fé er kr. 24.691.336,-
Eigið fé og skuldir kr. 41.714.050,-
Hægt er að skoða Ársreikning hér:Golfklúbbur Selfoss. Ársreikningur 1. nóv. 2014 – 31. okt. 2015
Gosarar geta því verið mjög stolt af rekstri og stöðu GOS í dag.
Töluverð aukning var í flestum liðum hjá GOS þetta árið t.d hækkuðu flatartekjur um heil 29% á milli ára.
Árgjöld fyrir árið 2016 voru samþykkt, hækkun er á árgjöldum en þær hækkarnir skýrast fyrst og fremst á að við erum að taka í notkun nýja innaðstöðu sem GOS er að leiga til næstu tveggja ára og fylgir því mikill kostnaður, einnig er farið eftir vísitöluhækkun, launahækkunum og hækkun á sköttum til GSÍ. GOS ætlar að vera með nýjan lið í Árgjöldum GOS 2016 en núna verður sér árgjald fyrir aldurshópin 19 – 30 ára. Sá aldur hefur átt undir högg að sækja í golfinu og er mikið brottfall á þessum aldri, en óþarfa mikið stökk var á milli unglingagjald ( 18 ára og yngri) og síðan beint í fullt gjald. Með þessu gjaldi erum við að vonast að þessir kylfingar haldi áfram eftir 18 ára aldur.
Frítt er fyrir félagsmenn GOS í nýju inniaðstöðina en hún verður opnuð 15-19 desember, auglýst síðar.
Hægt er að skoða gjaldskrána hér:tillaga að árgjöldum 2016
Töluverð aukning var á spili á vellinum á þessu ári en við fórum í fyrsta skipti síðan mælingar hófust yfir 10.000,- hringi eða 11,163,- hringir voru skráðir í ár. Aukning milli ára var því 14,1%.
Félagafjöldi GOS 2015 var 493 og þar af 203 í gegnum starfsmannafélag Íslandsbanka. Aukning var 23 kylfingar í GOS
Öflugar nefndir voru kosnar og óskum við þeim til hamingju með það og óskum þeim velgengi.
Hér er hægt að sjá nefndir GOS 2016:Tillaga að nefndum 2016
Viðurkenningar:
Kylfingur ársins: Alexandra Eir Grétarsdóttir
Efnilegasti unglingurinn: Heiðrún Anna Hlynsdóttir
Framför og ástundun: Aron Emil Gunnarsson og Pétur Sigurdór Pálsson
Mesta lækkun forgjafar: Ólafur Unnarsson
Háttvísibikar GSÍ: Bárður Guðmundarson
Eftirfarandi fara í kjör um íþróttakarl og konu ársins hjá Sveitafélaginu Árborg 28.desember
Golfkona ársins: Alexandra Eir Grétarsdóttir
Golfkarl ársins: Aron Emil Gunnarsson
Eldri kylfinganefnd afhendi Vilhjálmi Pálssyni bikar fyrir sigur í Holukeppni eldri kylfinga sem fór fram í sumar.
GOS óskar verðlaunahöfum til hamingju með viðurkenningar.
Undir önnur mál á fundinum:
Hlynur Geir kynnti nýja inniaðstöðu sem verður í Gagnheiði. Loksins erum við komin með inniaðstöðu yfir veturinn sem er tryggð til amk 2ja ára. Hlynur kynnti kaup á nýjum golfhermi sem er sá flottasti sem hægt er að fá og sýndi myndband af golfherminum. Kostnaður við nýja aðstöðu er að detta í 2,3 milljónir sem stefna er á að verði uppgreidd á 2 árum með seldum hringjum í hermi. Nýr yfirþjálfari barna og unglinga er Bergur Sverrisson. Alexandra og Heiðrún munu sjá um þjálfun stúlkna og en Hlynur Geir sér einnig um þjálfun. Kostnaður þjálfara er í algjöru lágmarki. Hermir verður opinn frá 10-22 og munu verða seldir aðgangar í hann en panta þarf tíma í gegnum krækju á heimasíðu klúbbsins. Innheimta verður með sölu gatakorta og er verði stillt í hóf sem vert er að minnast á að er mun lægra en hjá öðrum klúbbum á landinu með svipaðan hermi. Hlynur kynnti einnig hvernig aðgangur í húsið er fyrirhugaður. Kynning verður á herminum laugardaginn 19.desember.
Hlynur Geir kynnti framtíðarsvæði GOS. Lítið er að gerast í þeim málum. Beðið er eftir aðaldeiluskipulagi Flóahrepps og gæti biðin orðið 1 ár. Allir tengdir aðilar eru þó sammála um að drífa þurfi í að halda áfram vinnunni. Því er unnið að því í klúbbnum að undirbúa breytingar á þeim velli sem er nú til staðar þar til byrja má á nýja svæðinu
Fundarstjóri óskaði nýrri stjórn til hamingju með kosningu. Hann þakkaði einnig fundarmönnum fyrir góða fundarsetu og óskaði þeim velfarnaðar. Sleit síðan fundi kl 21:50
Hægt er að skoða Ársskýrslu GOS 2015:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
