Golfvellir í Þýskalandi: Golfanlage Dresden-Ullersdorf (10/18)
Í vor var farið af stað með að kynna 18 bestu golfvelli Þýskalands og voru fyrri 9 kynntir – Nú verður fram haldið með seinni 9 og er völlurinn sem kynntur verður í dag er í Dresden, um miðbik Austur-Þýskalands – en völlurinn heitir Dresden Ullersdorf.

Logo Dresden Ullersdorf golfvallarins
Völlurinn sem er 18 holu eins og segir rétt hjá Dresden, í sjarmerandi sveit milli Prießnitzaue á odda Dresdner Heide (þ.e. skógarsvæðis) og „Hvíta hjartarins (þ.e. „Weisser Hirsch“) og er á örlítið hæðóttu svæði.
Á vellinum er mikið af ám, tjörnum og vötnum og mikið gert til að öll náttúra svæðisins fái að njóta sín. Eftir golfhring í Dresden Ullersdorf er um að gera að njóta þess sem „Golfino Franco“ veitingastaðurinn hefir upp á að bjóða í klúbbhúsinu, en það er mikið af smáréttum eða öðrum réttum þar sem vín að vali er serverað með. Best er að sitja úti á veröndinni og njóta þess að horfa á útsýnið yfir völlinn og „Schönefelder Hochland“ meðan drukkinn er einn ískaldur bjór.
Boðið er upp á golfkennslu á vellinum.
Á Dresden Ullersdorf er 15. brautin sú erfiðasta á seinni 9.
Þetta er par-4 braut með allskonar hættum, þó hún líti nógu sakleysislega út þegar kvöldsólin speglar sig í vatnshindruninni (tjörninni) sem er við brautina.
Reyndar má finna upplýsingar um lengd allra brauta á Dresden Ullersdorf og fá ráð hvernig spila á þær allar með því að SMELLA HÉR:
Komast má á heimasíðu Dresden Ullersdorf golfklúbbsins með því að SMELLA HÉR:
Aðrar upplýsingar:
Heimilisfang: Golfanlage Dresden Ullersdorf
Am Golfplatz 1
01454 Ullersdorf
Sími: (0 35 28) 48 06 -0
Fax: (0 35 28) 48 06 -11
Tölvupóstfang: info@golfanlage-ullersdorf.de
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
