Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2013 | 13:00

Golfvellir í Kanada (V): Campilano

Icelandair bjóða nú upp á beint flug til tveggja nýrra áfangastaða í Kanada: Edmonton og Vancouver og þar opnast tækifæri fyrir íslenska kylfinga til þess að spila glæsilega golfvelli Kanada.

Í Kanada eru um 2000 golfvellir.  Þar af eru 233 í British Colombia og þar af eru 46 í næsta nágrenni Vancouver.  Golf 1 hefur í dag kynningu á nokkrum þessara 46 „Vancouver“ golfvalla.

Í nýlegri grein Golf Digest var einn golfvöllurinn nálægt Vancouver (um 7 mílu þ.e. í 11 km fjarlægð frá miðborg Vancouver),  í Campilano Golf & Country Club  talinn 3. besti golfvöllur Kanada (af 2000!!!).  Til þess að sjá grein Golf Digest um 30 bestu golfvelli í Kanada SMELLIÐ HÉR: 

Það eru margar flottar golfholur á Campilano eins og þessi par-3!

Það eru margar flottar golfholur á Campilano eins og þessi par-3 14. hola sem nefndist Portal. Hún þykir ein sérstakasta par-3 hola í Kanada

Golfvöllurinn „Capilano“ er nefndur eftir síðasta indánahöfðingja Squamish og Musqueam indíana, Capilano, sem dó 1870, en völlurinn er byggður á gömlu indíanalandi Capilano.

Margar minjar um indíana eru í nálægð við Capilano golfvöllinn og mörg kennileiti nefnd í höfuðið á síðasta indíánahöfðingjanum m.a. Capilano brúin en þessar minjar eru nálægt brúnni

Margar minjar um indíana eru í nálægð við Capilano golfvöllinn og mörg kennileiti nefnd í höfuðið á síðasta indíánahöfðingjanum m.a. Capilano brúin en þessar minjar eru nálægt brúnni

Klúbburinn var stofnaður 1936 af ungum viðskiptajöfri A.J.T. Taylor, sem m.a. fékk stuðning Guiness fjölskyldunnar í Bretlandi til verksins. Jafnvel þó fallegt klúbbhúsið beri af öðrum þá er styrkur Campilano þó einkum fólginn í golfvellinum.

Golfvöllurinn var hannaður af einum besta golfarkítekt síns tíma Stanley Thompson og þykir þar að auki besta verk hans.

Campilano er 18 holu par-72 og opnaði dyr sínar í apríl 1939 þegar forseti klúbbsins, sem átti eftir að verða æðsti stjórnandi British Colombia þ.e. Lieutenant Governor of British Columbia W. C. (Billy) Woodward tók fyrsta höggið.

Fyrstu 6 holurnar eru frekar niður í móti og sú 6. býður m.a. upp á gullfallegt útsýni yfir Vancouver.

Fallegt útsýni frá 6. braut Campilano yfir Vancouver

Fallegt útsýni frá 6. braut Campilano yfir Vancouver

7. brautin er ein sú erfiðasta á Campilano – upp í móti, eins og reyndar allar næstu 6 holurnar – en sú 7. spilast bæði löng og svo er fullt af sandglompum á henni. Holur 13.-18. á Campilano þykja meðal bestu lokahola í heimi. Ástæðan er einföld þær eru krefjandi og landslagið í vellinum er hreint út sagt ótrúlegt. Sérstaklega verður flestum par-3 14. holan, Portal eftirminnileg en þar er slegið niður á litla frímerkjaflöt.

En sjón er sögu ríkari og nú er bara að skella sér eins og í vikuferð til Vancouver til þess að prófa þessa golfperlu!  (Til þess að lesa um völlinn holu frá holu og taka þar með forskot á sæluna – endilega farið á heimasíðu klúbbsins hér fyrir neðan og fáið upplýsingar um sérhverja holu Campilano!!!)  (Smellið á heimasíða hér að neðan, veljið PUBLIC vinstra megin og síðan COURSE, þá er leiðarvísir í máli og myndum um hverja holu Capilano!)

16. holan á Capilano golfvellinum

16. holan á Capilano golfvellinum

Upplýsingar:

Heimilisfang: 420 Southborough Drive – West Vancouver BC – Kanada V7S 1M2

Sími:  (604) 922-9331

Fax: (604) 922-2541

Heimasíða Campilano: SMELLIÐ HÉR: