Golfvellir í Frakklandi: Béthemont (7/10)
Béthemont Country Club er einn af fremur nýlegum völlum, stofnaður 1989, þ.e. hann á sér ekki langa sögu eins og t.a.m. sá sem kynntur var s.l. sunnudag, Morfontaine (1913).
Béthemont er 30 km í vestur af París. Við klúbbinn er fallegur, vel viðhaldinn golfvöllur, sem Þjóðverjinn Bernard Langer hannaði. Þetta er skógarvöllur, með mörgum skemmtilegum holum, þar sem reynir á allar kylfur í pokanum. Nokkuð eru um hæðir og hóla þ.e. hann er ekki sá auðveldasti undir fótinn. Völlurinn er par-72, 6035 metra af öftustu teigum.
Ráðlegt er að bóka hring fyrirfram og strangt er farið eftir að kanna forgjöf – þannig ekki gleyma forgjafarpassa.
Eins er ekki ódýrt að spila völlin. Á vikudögum kostar hringurinn €49 (8000 krónur) og um helgar €79 (12.800 krónur).
Béthemont völlurinn er rekinn af NGF Golf Group, sem á og rekur golfvelli víðsvegar um Frakkland, þeir sem eru nálægt París eru Apremont, Cély, Feucherolles og Rochefort. Í Suður-Frakklandi rekur NGF Toulouse-Seilh golfvöllinn. Eitt sinn var hægt að fá afsláttarkort þ.e. ef áhugi er á að spila fleiri golfvelli en 1 í kringum París, þá borgar kortið sig.
Upplýsingar:
Heimilisfang: Béthemont Country Club, 12 Rue du Parc de Béthemont, Poissy, en-St.Germain- en-Laye, Ile-de-France, F-78300.
Sími: 33 (0) 1 39 08 13 70 (skrifstofa/pro-shop)
Fax: 33 (0) 1 39 75 49 90
Til þess að sjá heimasíðu Béthemont SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
