Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 17:00

Golfvellir í Bandaríkjunum: Trump National Golf Club Washington DC

Icelandair býður upp á ódýr flugfargjöld til Bandaríkjanna og meðal áfangastaða er Washington DC; litlar 30.000 kr. kostar farið. Tilvalið að skreppa til DC í golf!!!  Það er dýrara að spila 1 golfhring!!!

Úr fullt af góðum golfklúbbum er að velja í nágrenni Washington DC og verður hér kynntur einn sem er í dýrari kantinum: Trump National Golf Club Washington DC.  Að spila golfhring þar kostar $280 þ.e. u.þ.b. 37.000 íslenskar krónur en verðið lækkar eftir því sem líður á daginn.  Og að spila Trump golfvöll er upplifun

Úr tveimur 18-holu golfvöllum er að velja Championship golfvöllinn, sem hannaðaur var af Tom Fazio og River golfvöllinn, hönnuðum að Arthur Hill.

Championship völlurinn par-72 var valinn 10. besti golfvöllur Bandaríkjanna árið 1994 og 5. besti golfvöllur í Virginíu ríki. Völlurinn er eins og svo margt annað bara orðinn betri með aldrinum ef eitthvað er.

River-vellinum, sem líka er par-72, var bætt við 1999 og liggur meðfram hinni frægu Potomac á, í Washington DC. Reyndar er fallegt útsýni yfir ánna frá báðum völlum.

 

Trump National  Golf Club - Washington DC

Trump National Golf Club – Washington DC

Heimilisfang vallarins er eftirfarandi:

Trump National Golf Club – Washington, DC
20391 Lowes Island Blvd.
Potomac Falls, Virginia 20165
703-444-4801

Til þess að sjá heimasíðu Trump National Golf Club SMELLIÐ HÉR: