Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2012 | 21:00

Golfvellir á Spáni: í Cádiz nr. 2 – Dehesa Montenmedio Golf & Country Club

Seve Ballesteros sagði eitt sinn: „Montenmedio er einn af þeim golfvöllum sem enginn kylfingur ætti að láta framhjá sér fara.“ Og… Montenmedio golfvöllurinn er svo sannarlega einn með þeim glæsilegri í Cádiz…. það er ekki annað hægt en að láta sér líða vel á þessum einstaka golfvelli. Hann hefir oftar en einu sinni hlotið verðlaun fyrir að vera fallegasti golfvöllur Spánar. Það sem er sérstakt við Montenmedio er að það sést varla í eina einustu villu eða íbúðarkomplex við völlinn, sem er svo algengt að sjá á spænskum golfvöllum. Þeim mun meira er af ólívu- eikar- og furutrjám og þar að auki dádýrum, hérum, öndum og mikið af öðru dýralífi á því 500 hektara lands, sem völlurinn er á. Völlurinn er dásamlega fallegur og sérlega vel hirtur.

Dádýr á Montenmedio golfvellinum.

Af golfvellinum er fallegt útsýni yfir á hvíta bæinn Vejer de la Frontera og bæina Benalup og Medina. Það er jafnvel hægt að sjá yfir til Tangier í Marokkó þegar óskýjað er. Eins sést mikið til hestamanna, þar sem alþjóðleg hestamiðstöð er í nágrenninu. Fyrir þá sem sameina vilja golf&menningu, þá er um að gera að heimsækja nútímalistasafnið sem er á golfstaðnum, sem verður að teljast einstakt meðal golfstaða. Fyrir þá sem eru meira fyrir aksjón má fara í hestakerruferð eða í 4×4, sem golfstaðurinn býður líka upp á.

Montenmedio er 6.260 metra langur 18 holu og parið er 72. Flestar brautir á Montenmedio golfvellinum eru í hundslöpp og mjög misjafnar að erfiðleikastuðli svo vægt sé til orða tekið. Það sem vekur nokkra athygli er herbíllinn sem er á hvolfi í vatni við 6. braut og andarhúsið á 10. braut (út í vatni hægra megin).

Haciendahótelið er byggt í andalúsískum stíl. Þar má borða bæði góðan spænskan mat (mæli með Gazpacho) eða alþjóðlegan í Casa Club eða veitingastaðnum Kurupay, þar sem fá má sérlega góðan ítalskan og marokkóskan mat (couscous-ið óvíða nammilegra!) Annars hættulegt að mæla með mat – smekkur manna svo ólíkur – en þetta tvennt var a.m.k. virkilega vel matreitt.

Endilega skoðið heimasíðu Montenmedio – kíkið á myndskeiðið sem þar er af Montenmedio (niðri í vinstra horninu) + fallegar myndir af vellinum, sem og vallarvísir og verður vellinum varla betur lýst í örfáum orðum en þar er gert –  smellið HÉR: 

Best er þó að upplifa golfvöllinn og Montenmedio af eigin raun!

Upplýsingar um völlinn:

Heimilisfang: Ctra N-A 48, E-5 km 42,5 Vejer de la Frontera, 11150 Cádiz.

Sími: + 34 956 451216

Fax: + 34 956 4511295

Tölvupóstfang: golf@montenmedio.es