Klúbbhúsið á Costa Ballena, en golfvellir CB eru uppáhaldsvellir Hennings Darra erlendis. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2016 | 18:00

Golfvellir á Spáni: Costa Ballena

Costa Ballena er í uppáhaldi hjá stórum hópi íslenskra kylfinga sem fara þangað ár eftir ár.

Íslenskir kylfingar búsettir erlendis nota m.a. tækifærið til að hitta landa sína á Ballena og spila við þá golf!

Costa Ballena Ocean Golf Club er við Atlantshafsströnd Cadiz.

Í mestu nálægð eru sögulegir bæir á borð við Rota, Sanlucar de Barremeda, Jerez de la Frontera, Cadiz, El Puerto de Santa Maria og Sevilla.

Keppnisgolfvöllur Costa Ballena er 27 holu, hannaður af Jose Maria Olazabal og tekinn í notkun 1995 en opnaður fyrir almenning 1997. Costa Ballena hefir löngum verið æfingastöð landsliða ýmissa þjóða í golfi yfir vetrartímann, þ.á.m. þess íslenska.

Margir Íslendingar hafa líka stigið sín fyrstu spor á hinum skemmtilega 9 holu par-3 velli Costa Ballena undir styrkri leiðsögn Magnúsar Birgissonar, Ragnhildar Sigurðardóttur og Harðar Hinriks Arnarsonar o.fl. golfkennara hin síðari ár.

Sjá má heimasíðu Costa Ballena með því að smella hér: COSTA BALLENA OCEAN GOLF CLUB

Golf 1 var á Costa Ballena 4. maí fyrir 5 árum og af því tilefni voru teknar nokkrar myndir af Costa Ballena golfvellinum og nokkrum Íslendingum sem voru í golfferðalagi og við störf sem golfkennarar á þessum yndislega stað:

MYNDASERÍA AF COSTA BALLENA KEPPNISVELLINUM 4. MAÍ 2011