Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2017 | 17:00

Golfútbúnaður: Stenson skiptir um brautartré

Sænski kyfingurinn Henrik Stenson hefir skipt um kylfu þ.e. hann hefir látið 3-tréð sitt fjúka sem hefir verið í poka hans í 7 ár.

Gamla, góða 3-tréð skipti hann út fyrir nýja Callaway Great Big Bertha Epic brautartréð, sem reyndist honum síðan mjög vel í síðustu viku á Omega Dubai Desert Classic.

Sjá má dóma um Callaway Great Big Bertha Epic brautartréð með því að SMELLA HÉR: 

Nr. 4 á heimslistnum (Stenson) er þekktur fyrir hæfni sína með Diablo Octane Tour 3-tréð, sem kom á markað 2010 og hann hefir hingað til mjög tregur til að gera nokkrar breytingar, eða skipta á kylfunni og nýrri afbrigðum hennar.

Til hvers líka að skipta ef hægt er að slá yfir 300 yarda með kylfunni með ótrúlegri nákvæmni.

Sjá má dóma um Callaway Great Big Bertha Epic dræverinn með því að SMELLA HÉR: