Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2013 | 09:00

Golfútbúnaður: PING S55 járnin

Nú á tímum Twitter og farsíma er alveg ómögulegt að halda nokkru leyndu. Nýjasti golfútbúnaðurinn sem er umræðuefni nokkurra af toppstjörnum golfheimsins eru nýju PING S55 járnin.

Nýju PING S55 járnin

Nýju PING S55 járnin

Toppkylfingar sem eru á mála hjá PING voru nefnilega að prófa nýju kylfurnar á mótum s.l. viku s.s.  The Barclays og Johnnie Walker Championship í fyrsta skipti.

PING S55 járnin leysa af hólmi   2010 PING S56 járnin, meðan að þau virðast líka líta út og hafa nokkra eiginleika 2012 PING Anser járnanna.

Ekkert hefir verið gefið upp hvert verðið á nýju S55 járnunum kemur til með að vera, en þau munu fást á nokkrum völdum stöðum í nóvember n.k. og verða síðan sett á markað með nokkrum endurbótum 2014.

PING S55 blað er í stíl við það sem notað er á helstu mótaröðunum  hannað sérstaklega fyrir PING Tour leikmennina og lágforgjafarkylfinga.  Járnin fást í 3-PW.

Kylfuandlitið á S55 er þynnra en á forveranum  S56,  og fláinn í gegnum settið er sterkara.

Líkt og í  PING S56 (og i20G25) járnunum, verða S55 járnin með CTP (Custom Tuning Port), en portið í   S55unum er stærra en áður. Að síðustu eru nýju járnin bætt með Tungsten  (aukaþyngdI) í tá til þess að bæta fyrirgefanleikann  auk þess sem sérstakur nýr styrktarbiti (ens. stabilizing bar) stuðlar að því að bæta einnig fjarlægðarstjórnun.

Til þess að fá nýjustu fréttir af S55 járnunum og öðrum PING vörum smellið á PING Golf Zone .

Meðal kylfinga sem prófuðu nýju járnin á mótum helgarinnar og voru bara býsna ánægðir eru Lee Westwood, Grégory Havret, Richard Lee,  Angel Cabrera og Scott Langley.