
Golfútbúnaður: Odyssey White Hot Pro pútter
Það voru 30 kylfingar atvinnumótaraðanna, sem voru með Odyssey White Hot í pokanum 2012 þegar þeir sigruðu mót og þar með er Odyssey White Hot pútterinn einn sá árangursríkasti í sögu framleiðandans.
Meðal þeirra sem settu niður sigurpútt 2012 með Odyssey White Hot eru Brandt Snedeker, Luke Donald og Ernie Els. Núna, árið 2013 tekur White Hot mið af því sem atvinnumönnum hefir reynst best.
Upprunalegi Odyssey White Hot pútterinn sló strax í gegn meðal áhuga- jafnt sem atvinnumanna. Þrátt fyrir breytingar í gegnum árin hafa 60% af þeim atvinnumönnum sem nota Odyssey pútterana, haldið sig við upprunalegu White Hot innslögin (ens.: insert/hvíti partur pútterana).
Þess vegna byggja báðir Odyssey pútterarnir árið 2013 – White Hot Pro og Versa – á innslögum upprunalega White Hot púttersins.
Með nýja, bætta innslaginu og nýju laser slípunar ferli hefir White Hot Pro pútterslínan verð hönnuð með það í huga að tilfinningin og hljóðið sé stöðugra en í upprunalega pútternum.
White Hot Pro pútterinn er líka með nýju Gun Metal PVD útliti, sem er hannað til að draga úr endurkasti sólarljóss og er í uppáhaldi hjá mörgum kylfingnum. White Hot Pro pútterinn verður fáanlegur með 14 mismunandi tegundum púttershausa, þ.á.m. tveimur sem eru nýir í Pro línunni.
V-línan (hér að ofan) er með hárri MOI púttershauss lögun.
og D.A.R.T. Mini (hér að ofan) er þéttara (ens. more compact) tilbrigði af D.A.R.T. módeli Odyssey, sem fyrst kom fram 2011.
White Hot Pro pútterarnir verða fáanlegir í golfbúðum í Englandi frá og með 1. mars 2013 og kosta í kringum £90 (u.þ.b. 17.000 íslenskar krónur).
Til þess að sjá myndir og myndskeið af Odyssey White Hot pútterum
- maí. 24. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bill Haas og Nick Dougherty – 24. maí 2022
- maí. 23. 2022 | 22:00 PGA Championship 2022: Justin Thomas sigraði!!!
- maí. 23. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Olga Gunnarsdóttir – 23. maí 2022
- maí. 15. 2022 | 23:59 PGA: KH Lee sigraði á AT&T Byron Nelson mótinu
- maí. 15. 2022 | 21:00 NGL: Axel Bóasson sigraði á Rewell Elisefarm Challenge
- maí. 15. 2022 | 20:00 LPGA: Minjee Lee sigraði á Cognizant Founders Cup
- maí. 15. 2022 | 18:00 Evróputúrinn: Horsefield sigraði á Soudal Open
- maí. 15. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ken Venturi ——– 15. maí 2022
- maí. 14. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (20/2022)
- maí. 14. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Hafsteinn Baldursson og Shaun Norris – 14. maí 2022
- maí. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Finnur Sturluson – 13. maí 2022
- maí. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgir Björn Magnússon – 12. maí 2022
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022