
Golfútbúnaður: Bestu pútterarnir 2013
Hér á eftir fer upptalning á bestu pútterunum ársins 2013 að mati South Florida Golfmagazine, en fulltrúi blaðsins fylgdist að sjálfsögðu með öllu því nýjasta á PGA sölusýningunni í Orlando, sem lauk s.l. laugardag.
Hér fara 5 bestu pútterar ársins að mati blaðsins:
Tropical Abaco – Rife pútter
Þessi pútter þolir vel allskyns álag vegna nýrrar hönnunar (ens. intricate plating process) sem þegar var farin að sjást í Rife pútterunum 2012. Það sem er sérstakt er svokallaður „prism effect“ sem ljær hverjum pútter sinn sérstaka lit.
Signature Limited Run Bettinardi pútter
Signature Series 5 er klassískur Bettinardi pútter og er djásnið í 2013 línu þeirra. Púttershálsinn virðist bráðna alveg saman við púttershöfuðið þegar verið er að pútta og kemur það til af því að hálsinn er mest mjór neðst og víkkar upp á við. Pútterinn er með svokallaðan „reverse taper flow neck.“
Pro Type Black Odyssey pútter
Það sem einkennir pútterinn er mýkri tilfinning og betra rúll. Pro Type pútterinn var hannaður fyrir bestu kylfinga heims. Hönnunin byggist á endurgjöf (ens. feedback) frá mörgum af fremstu kylfingum heims þ.e. áliti þeirra um hvað betur mætti fara í hönnun púttersins.
Newport 1,5 Scotty Cameron
Scotty stendur alltaf fyrir sínu. Það besta við Select línuna sem Scotty tilheyrir er að þar finna allir pútter við sitt hæfi. Hönnunin er að mati South Florida Golf Magazine framúrskarandi.
Að lokum er ekki hægt annað en að nefna:
PING Anser Milled Series pútterana
PING hefir hefðina fyrir að hanna einhverja albestu pútterana. Nú er hægt að velja um 7 gerðir þannig að hver finni pútter sem hentar best stroku viðkomandi.
Þetta er í samræmi við nýja „Fit for Stroke“ concept-ið.
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022