Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2013 | 16:00

Golfþing 23. nóvember n.k.

Þing Golfsambands Íslands verður haldið laugardaginn 23. nóvember 2013. Þingið fer fram í fundarsal Íþrótta-og sýningarhallarinnar í Laugardal og hefst þingið stundvíslega kl.10:00.

Málþing um golf verður haldið föstudaginn 22. nóvember og hefst það kl.17:00 og fer það fram í fyrirlestrasal Íþrótta-og sýningarhallarinnar í Laugardal.

Yfirskrift málþingsins verður: GOLF SEM LÍFSTÍLL og er ætlunin að ræða mikilvægi golfíþróttarinnar fyrir einstaklinginn, fyrir sveitarfélögin og samfélagið í heild.