Golfgrín á laugardegi
Tiger í Nepal
Tiger Woods var kominn í þörf fyrir frí og flaug því til Nepal. En líkt og hver annar kylfingur í fríi hvíldist hann ekkert nema að fara út á golfvöll og þarna varð hann bara að spila á því sem í boði var á staðnum – fjallagolfvöll, sem var hátt uppi í Himalaya-fjöllunum.
Þeir í golfklúbbnum þarna voru yfir sig ánægðir yfir að fá Tiger í heimsókn en þeim þótti mjög leitt að geta ekki boðið honum upp á kaddý, þar sem búið var að panta alla Sherpana, sem venjulega gegndu störfum kylfubera, í fjallaleiðangra á Everest.
En þeir í klúbbnum fullvissuðu Tiger um að jak-uxi myndi vel geta þjónað í stað kaddýanna.
„Sahib Woods,“ sagði ritari klúbbsins „þetta dýr er alveg ótrúlega verðmætt og góður burðaruxi, en þú verður bara að passa eitt, hann á það til að setjast á golfbolta. Þetta er samt ekkert vandamál þar sem allt sem þú þarft að gera er að grípa undir hann og ná í boltann þinn. Jak-uxinn mun síðan halda áfram kaddý-störfunum.“
Þarna var sem sagt búið að vara Tiger við. Fyrstu 8 holurnar voru viðburðarlitlar. Tiger þurfti aðeins að ná í boltann sinn undan uxanum tvisvar. Síðan var það á 9. holunni að Tiger varð að slá blindhögg yfir steinagjá í dogleg og sá ekkert hvar boltinn lenti. Jak-uxinn hljóp á eftir boltanum og Tiger á eftir uxanum. Þegar Tiger kom fyrir horn sá hann hvar uxinn hans sat í vatnstorfæru.
Tiger svipti sig úr golffötunum og kafaði ofan í vatnið. Það var ísjökulskalt. Hann þreif undir uxann en fann ekki boltann sinn. Hann varð að koma upp á yfirborðið til þess að ná andanum og dýfði sér síðan ofan í, í annað sinn greip undir uxann…. en allt kom fyrir ekki. Allt er þegar þrennt er þannig að hann reyndi í þriðja sinn…. en aftur árangurslaust. Frosinn eins og grýlukerti lagði hann af stað aftur í klúbbhúsið.
„Hvað gerðist eiginlega?“ var spurt með sjokksvip í klúbbhúsinu. Tiger útskýrði fyrir ritara klúbbsins að hann hefði kafað 3 sinnum til þess að ná í boltann sinn, en hefði ekki fundið hann undir jak-uxanum. Hann væri nær dauða en lífi úr kulda eftir þetta.
„Og“ hélt Tiger áfram, „jak-uxinn sigur enn í vatnstorfærunni!“
„Ó, afsakaðu þúsundfalt,“ sagði ritarinn afsakandi, „ég gleymdi að segja þér það. Jak-uxanum finnst líka gott að sitja á fiski!“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

