
Golfbækur: „Golfboltahvísl“ eftir Lo Linkert
Lo Linkert Hilchenbach er þýsk-kanadískur kylfingur með 9 í forgjöf. En hann er meira en það; hann getur teiknað af Guðs náð og er alþjóðlegur skopmyndateiknari.
T.a.m. gaf hann út í Þýskalandi fyrir 25 árum, þ.e. árið 1987, bókina „Golfballgeflüster“ sem myndi í lauslegri íslenskri þýðingu vera svo mikið sem „Golfboltahvísl.“
Þetta er skemmtibók með 85 teikningum sem Lo tileinkaði golfboltum þ.e. allar teikningarnar eru af golfboltum. Hann vildi teikna bókina til heiðurs þeim þúsundum golfboltum, sem höfðu veitt honum svo mikla ánægju 20 árin þar á undan þ.e. frá árinu 1967 – Með bókinni þakkar hann þeim það, að hafa þrívegis farið holu í höggi, auk allra arnanna og fuglanna. Hann þakkar golfboltunum fyrir að hafa verið svo góðir að detta ofan í holuna! Lo Linkert persónugerir golfboltana og eru tvær aðalsöguhetjurnar, kven- og karlgolfbolti.
Því miður veit Golf 1 bara til þess að bókin hafi komið út á þýsku, en Lo skrifaði hana m.a. líka fyrir þýska golfvini sína og húmorinn oft þannig að erfitt er að þýða hann.
Fyrir þá sem lesa þýsku og hafa áhuga að lesa hana (hún er fljótlesin) þá eru helstu upplýsingar um hana hér:
ISBN 3-922606-12-1
Útg.: F.O. Kless-Böker
Pósthólf 1466
D-8130 Starnberg
Sími: (0 81 51) 73 23
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023