Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2016 | 09:00

Golf 1 fimm ára í dag!

Golf 1 er fimm ára í dag, þ.e. 5 ár eru frá því að fyrsta fréttin birtist á Golf 1 golffréttavefnum. Það var frétt í greinaflokknum „Frægir kylfingar“ og um John F. Kennedy 35. forseta Bandaríkjanna, sem enn í dag þykir fremstur í golfi af þeim sem setið hafa í forsetastóli í Bandaríkjunum.. Sjá fyrstu grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR:

Frá því fyrir fimm árum síðan hafa tæp 16.000 greinar birtst á Golf1, þar fjöldi greina á ensku og þýsku. Golf 1 er því eini golffréttavefurinn í heiminum sem skrifar golffréttir á íslensku, ensku og þýsku.

Golf 1 mun áfram flytja fréttir af 2. vinsælustu íþróttagrein á Íslandi ásamt því efni sem vefurinn er orðinn þekktur fyrir: úrslitafréttir af öllum helstu mótaröðum heims, afmælisgreinar, kynningar á og viðtöl við kylfinga, kynningar á golfvöllum, kynningar á golfbókum, sögur af golfi, golfútbúnaðargreinar, krakkana okkar á Íslandsbankamótaröðunum, fremstu kylfingunum okkar á Eimskipsmótaröðinni, frægum og ekki svo frægum kylfingum, krökkunum okkar í bandaríska háskólagolfinu; fréttir af meistaramótum klúbba, sveitakeppnum, almennum mótum, hefðbundnum sem óhefðbundnum, kvenkylfingum sem karlkylfingum, ungum sem öldnum, íslenskum sem útlenskum.

Eins og lagt var upp með í upphafi er ekkert viðkomandi golfi Golf 1 óviðkomandi!

Bestu þakkir fyrir góðar viðtökur fyrstu fimm starfsárin.

Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.