Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2015 | 11:00

GOG: Mynd dagsins – Ásbyrgisvöllur

Einn af ástsælustu áfangastöðum Íslendinga innanlands er Ásbyrgi norður í landi. Tjaldsvæðin í Ásbyrgi. Botnstjörn.  Ægifagurt umhverfi. Kyrrð ….

Ásbyrgi er eitt af undrum náttúrunnar, með björg sem rísa 100 m í hestaskeifulögun. Hamrarnir eru 3,5 km langir og yfir 1 km á breidd. Fyrir botni  liggur Botnstjörn, lítil tjörn þar sem er mikil gróðursæld.  Áberandi  klettamyndun rís upp frá miðju Ásbyrgi, allt að 250 m breið, þekkt sem Eyjan.

Á svæðinu  er skóglendi sem samanstendur aðallega af birik, víði og reynitrjám.  Nokkur þúsund nýlega gróðursett grenitré dafna einnig. Fýllinn verpir  í bröttum klettunum, en margir aðrir fuglar kjósa að verpa í skóginum eða engjunum.

Ásbyrgi myndaðist úr tveimur eða fleiri hamfarahlaupum, af völdum jökla úr  norðurhluta Vatnajökuls. Samkvæmt goðsögninni um Sleipni,  sem var áttfættur hestur Óðins, setti hann einn hófa sinna niður þar og síðan eru hamrarnir í Ásbyrgi hófalaga.

Og síðan er það Ásbyrgisvöllur …. golfvöllur í einu ægifegursta umhverfi á öllu Íslandi og þá er ekki ofsögum sagt.  Af honum er mynd dagsins.

Í lokin má hér sjá yfirlit yfir lengd Ásbyrgisvallar, sem er heimavöllur Golfklúbbsins Gljúfra (GOG):

1 .braut par 4 gulur: 300 metrar rauður: 250 metrar HCP 5

2. braut par 4 gulur: 260 metrar rauður: 220 metrar HCP 1

3. braut par 4 gulur: 330 metrar rauður: 265 metrar HCP 3

4. braut  par 3 gulur: 155 metrar rauður: 135 meters hcp 9

5. braut par 4 gulur: 270 metrar rauður: 240 metrar HCP 17

6. braut par 5 gulur. 465 metrar rauður: 405 metrar HCP 1

7. braut par 3 gulur: 142 metrar rauður: 142 metrar HCP 7

8. braut par 3 gulur: 133 metrar rauður: 133 metrar HCP 15

9. braut par 3 gulur: 180 metrar rauður: 147 metrar HCP 11