Góður árangur í Skotlandi hjá 4 ungum íslenskum kylfingum
Fjórir íslenskir kylfingar luku í gær keppni á US Kids European Championship, en mótið fór fram á nokkrum golfvöllum í Skotlandi, 31. maí – 2. júní 2016.
Íslensku keppendurnir voru eftirfarandi: Elísabet Ágústsdóttir GKG, sem keppti í flokki 15-18 ára stúlkna; Flosi Valgeir Jakobsson GKG, keppti í flokki 13 ára stráka og Kjartan Óskar Guðmundsson NK og Sigurður Arnar Garðarsson GKG, sem kepptu í flokki 14 ára stráka.
Bestum árangri náði Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, en hann keppti í flokki 14 ára stráka, líkt og Kjartan Óskar, NK. Sigurður Arnar varð í 4. sæti af 32 keppendum, með skor upp á 7 yfir pari (71 78 74). Glæsilegt hjá Sigurði Arnari!!!
Kjartan Óskar var ekki síður flottur hafnaði í 11. sæti á 16 yfir pari, en leikur hans fór sífellt batnandi eftir því sem leið á mótið (80 77 75).
Flosi Jakobsson, GKG lék í flokki 13 ára stráka. Hann varð T-19 af 58 keppendum, sem er glæsilegur árangur. Skor hans var 23 yfir pari (80 80 79).
Elísabet lék á samtals 39 yfir pari, 255 höggum (86 86 83) og hafnaði í 7. sæti af 10 keppendum í sínum flokki 15-18 ára stúlkna.
Sjá má lokastöðuna á US Kids European Championship í öllum flokkum með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
