Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2016 | 07:00

GO: Vorfundur á morgun!

Vorfundur GO fer fram sunnudaginn 24. apríl og hefst fundurinn kl. 16:00 í golfskálanum á Urriðavelli.

Þar verða ýmis mál er snúa að golfsumrinu hér í Urriðavatnsdölum til umræðu og verður meðal annars farið yfir stöðu valla, framkvæmdir og áætlun um opnun bæði Urriðavallar og Ljúlfings.

Meðal þess sem verður til umræðu á vorfundi GO er eftirfarandi:

*Ástand og áætluð opnun Urriðavallar
*Evrópumót kvennalandsliða
*Meistaramót GO 2016
*Nýir golfbílar á Urriðavelli

Vorfundir GO hafa verið afar vel sóttir á undanförnum árum og var fullt út úr húsi á síðasta ári.

GO hvetur félagsmenn til að fjölmenna og taka þátt í að gera starf klúbbsins enn betra.

Boðið verður upp á kaffi á meðan fundinum stendur.