GO: Tryggvi Ölver valinn vallarstjóri ársins
Tryggvi Ölver Gunnarsson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Oddi, var valinn vallarstjóri ársins 2015 á aðalfundi Samtaka Íþrótta- og Golfvallastarfsmanna á Íslandi sem fram fór síðastliðinn föstudag.
Tryggvi Ölver er vel að þessum verðlaunum kominn en undir hans stjórn skartaði Urriðavöllur sínu fegursta síðastliðið sumar og á Tryggvi mikið hrós skilið fyrir sitt starf. Urriðavöllur hefur líklega aldrei verið í eins góðu ásigkomulagi og síðastliðið sumar.
„Ég er mjög kátur með þessa útnefningu og þetta er mikill heiður. Það er auðvitað ekki ég einn sem hlýt þessa viðurkenningu því ég deili henni með öðrum starfsmönnum vallarsins sem hafa unnið frábært starf á síðustu árum. Við erum búnir að vinna saman í mörg ár og á þeim tíma hefur byggst upp mikil þekking í viðhaldi og umsjón vallarins. Það er góð samvinna sem skilar þessum árangri,“ segir Tryggvi Ölver.
Heimild: GO
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
