GO: Kári, Birna og Hilmar Leó efst á 2. púttmóti GO
Á heimasíðu Golfklúbbsins Odds er eftirfarandi úrslitafrétt af púttmótaröð Odds, en 2. umferð var spiluð s.l. laugardag 28. janúar 2012:
„Tuttugu og níu þátttakendur skiluðu inn skorkorti, sem er met mæting þetta árið og gaman að sjá klúbbfélaga virka í félagsstarfi. Ágóðinn af mótinu og mótaröðinni mun renna í sjóði unglingastarfsins og kunna þau þeim sem lögðu leið sína í Kauptúnið bestu þakkir og vonast til að sjá keppendur og fleirri aftur næsta laugardag.
Eins og áður hefur verið kynnt þá er fyrirkomulagið þannig að 10 umferðir eru leiknar og telja 5 bestu umferðirnar. Úr þessum 5 umferðum verða svo krýndir púttmeistarar karla, kvenna og unglinga (15 ára og yngri). Helstu úrslit úr öðru mótinu voru eftirfarandi:
Karlar:
1. sæti Kári Ellertsson 27 pútt ( -6 á seinni)
2. sæti Sigurður Sigurðsson 27 pútt (-3 á seinni)
3. Sæti Ottó Axel Bjartmarz 28 pútt
Konur.
1. sæti Birna Bjarnþórsdóttir 31 pútt
2. sæti Laufey Sigurðardóttir 32 pútt (-2 á seinni)
3. sæti Auður Skúladóttir 32 pútt (-1 á seinni)
Unglingaflokkur:
1. sæti Hilmar Leó Guðmundsson 31 pútt
2. sæti Magnús Skúli Magnússon 39 pútt
Við minnum svo á að næsta mót er Laugardaginn 4. febrúar frá kl. 10:00 – 14:00 á opnunartíma hússins við Kauptún.“
- júlí. 26. 2024 | 23:45 Evrópumót einstaklinga: Íslandsmeistarinn spilar ein íslensku keppendanna lokahringinn
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Íslandsmót golfklúbba: GA Íslandsmeistari í 2. deild kvenna
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Afmæliskylfingar dagsins: Guðmundur Arason og Lucinda Grímsdóttir – 26. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 21:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erla Pétursdóttir -25. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 20:30 PGA: Horschel dro sig úr 3M Open
- júlí. 25. 2024 | 20:00 Sports Illustrated með umfjöllun um Arctic Open á Akureyri
- júlí. 24. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Björn Ólafur Ingvarsson – 24. júlí 2024
- júlí. 24. 2024 | 11:00 GKB: Brynhildur og Andri Jón klúbbmeistarar 2024
- júlí. 24. 2024 | 09:00 Íslandsmótið 2024: Aron Emil hlaut Björgvinsskálina
- júlí. 24. 2024 | 07:00 GSE: Lovísa Huld og Hrafn klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 19:00 GVS: Heiður Björk og Helgi klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:50 GE: Halldóra Guðríður og Magnús klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:00 Íslandsmótið 2024: Hulda Clara sú fyrsta sem fær Guðfinnubikarinn
- júlí. 23. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Harris English —- 23. júlí 2024
- júlí. 23. 2024 | 12:06 Opna breska 2024: Hvað var í sigurpoka Xander Schauffele?