GO fékk sjálfbærniverðlaun
Golfklúbburinn Oddur fékk sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands fyrir árið 2022.
Viðurkenning þess efnis var afhent á formannafundi Golfsambands Íslands sem fram fór laugardaginn 12. nóvember í Laugardalshöll. Þetta er í annað sinn sem GSÍ veitir slíkt verðlaun til golfklúbbs á Íslandi en Keilir í Hafnafirði fékk verðlaunin árið 2021.
Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, afhenti verðlaunin ásamt Arlette Anderson, framkvæmdastjóra sjálfbærnis hjá R&A.
Hulda sagði eftifarandi þegar viðurkenningin var afhent:
„Golfklúbburinn Oddur starfar í anda hugmyndafræðinnar um sjálfbærni og sjálfbæra þróun. Urriðavöllur tekur mið af hrauninu og sérkenni landslagsins þar sem aðstaðan og umgengni er til fyrirmyndar. Klúbburinn er með GEO vottun og hefur unnið sjálfbærni að leiðarljósi í mörg ár. Þar má nefna stóraukna notkun á rafmagnsslátturvélum. GO hefur tekið virkan þátt í verkefni GSÍ um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Að auki hefur GO tekið þátt frá upphafi í innleiðingu á Klappar hugbúnaðinum til að ná utan um helstu umhverfisáhrif auk annarra þátta s.s. jafnréttismál og góða stjórnarhætti. Á umráðasvæði klúbbsins eru frátekin bílastæði fyrir rafbíla og hleðslustöðvar í boði. GO hefur tekið virkan þátt í að halda mót fyrir yngri landslið kvenna og lætur sig alla þætti sjálfbærnina varða s.s. samfélagsmál og stjórnarhætti. Þannig hefur golfklúbburinn Oddur lagt upp með að virkja fjölbreyttan hóp fólks og huga að jöfnu kynjahlutfalli í stjórnum og nefndum.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
