Frá Grænanesvelli á Neskaupsstað – einum sérstakasta vellinum að mati Óðins Þórs
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2012 | 11:00

GN: Sjómannadagsmót GN og Glófaxa

Hið árlega Sjómannadagsmót Golfklúbbs Neskaupsstaðar og Glófaxa fer fram á Grænanesvelli laugardaginn 2. júní n.k. og hefst kl. 10.00.

Það er Glófaxi Vestmannaeyjum sem styrkir mótið eins og undanfarin ár og sendir GN bestu kveðjur og þakkir til Bergvins og hans fólks.

Eins og lítur út núna er von á góðu veðri á Neskaupsstað  um Sjómannadagshelgina og því kjörið tækifæri fyrir kylfinga að fjölmenna í þetta skemmtilega mót.

Grænanesvöllur  kom vel undan vetri og eru brautir/ flatir komnar í frábært stand.

Það má skrá sig í mótið HÉR:  og í GSM:  892-0588  (Siggi B) –  867-0232  (Elvar) Cool