GM: Ríkharður Már og Sigrún Linda efnilegust
Það var ekki bara Kristján Þór Einarsson sem hlaut viðurkenningu við kjör Íþróttamanns Mosfellsbæjar 2014. Fjöldi viðurkenninga fyrir góðan árangur féll kylfingum í skaut og er ljóst að framtíð golfsins er án efa björt í Mosfellsbæ. Við munum segja frá þessum viðurkenningum næstu daga og byrjum á þeim efnilegustu árið 2014.
Sigrún Linda Baldursdóttir voru veitt verðlaun fyrir að vera efnilegasti kvennkylfingur Mosfellsbæjar þetta árið. Sigrún átti frábært ár í keppnisgolfi en hún varð klúbbmeistari í flokki stúlkna 14 ára og yngri og jafnframt stigameistari á Áskorendamótaröð Íslandsbanka í flokki 14 ára og yngri. Sigrún var einnig í stúlknasveit Kjalar í flokki 18 ára og yngri. Sigrún er mjög samviskusöm og leggur hart að sér við æfingar og á framtíðina fyrir sér.
Efnilegasti karlkylfingur Mosfellsbæjar var svo valinn Ragnar Már Ríkarðsson. Ragnar Már spilaði vel á Íslandsbankamótaröð unglinga í sumar. Hann var í toppbaráttunni á flestum mótum og náði nokkrum sinnum á verðlaunapall. Frammistaða hans í sumar skilaði honum sæti í Framtíðarhóp GSÍ fyrir árið 2015. Ragnar sigraði sinn flokk á Mótaröð GKj með yfirburðum og á einnig framtíðina fyrir sér.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
