GM: Davíð ráðinn íþróttastjóri
Gengið hefur verið frá ráðningu Davíðs Gunnlaugssonar í stöðu Íþróttastjóra GM frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Davíð sem er uppalinn Mosfellingur og PGA kennari er félagsmönnum að góðu kunnur en hann hefur starfað hjá klúbbnum í hinum ýmsu störfum undanfarin ár.
Davíð útskrifaðist úr PGA kennaranámi árið 2015 og fékk við útskrift verðlaun fyrir besta einkakennsluprófið og ennfremur fyrir bestan námsárangur.
Davíð mun sinna stöðu Íþróttastjóra í hlutastarfi en ásamt því mun Davíð koma að þjálfun afrekshópa GM.
Davíð mun á næstu vikum leiða vinnu sem hafist hefur við að endurmóta afreksstefnu og kennslumál Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Markmið klúbbsins er að vera í fremstu röð golfklúbba á Íslandi og viðhalda þeim góða árangri sem afrekskylfingar klúbbsins hafa náð á undanförnum árum.
Á næstu dögum og vikum verða kynntir aðrir þjálfarar til að starfa við hlið Davíðs og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem mun nú halda áfram hjá GM undir handleiðslu Davíðs.
Boðað verður til fundar með foreldrum og iðkendum áður en æfingar hefjast í nóvember þar sem fyrirkomulag æfinga verður kynnt og farið yfir þær áherslur sem Davíð mun innleiða.
Texti: Heimasíða GM
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
