Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 31. 2019 | 18:00

Gleðilegt nýtt ár 2020!

Golf 1 óskar lesendum sínum svo og öllum kylfingum og landsmönnum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2019, með mörgum gleðistundum í golfi á komandi ári.

Golf 1 hefir nú verið starfandi í rúma 99 mánuði, þ.e. 8 ár , 3 mánuði og 6 daga og hafa á þeim tíma birtst um 22.000 greinar. Stefnt verður að því að auka greinaskrif á næsta ári.

Kylfingar innanlands, sem og vaxandi fjöldi erlendra kylfinga hafa tekið þessum yngsta golffréttavef Íslands framúrskarandi vel og umferð um vefinn ekkert nema aukist frá því hann hóf starfsemi fyrir rúmum 8 árum síðan, 25. september 2011.

Á árinu var haldið áfram að skrifa greinar um Ísland, íslenskt golf og það sem íslenskt er á ensku og þýsku. Golf 1 hefir nokkra sérstöðu, þar sem hann er eini golfvefurinn í heiminum , sem skrifar á ensku og þýsku um íslenskt golf. Einnig er stefnt því að auka skrifin á þessum hluta Golf 1 á komandi ári.

Nokkra gleði vekur það jafnræði sem er í lesendahóp Golf 1, þar sem karlkylfingar eru þó enn aðeins í meirihluta lesenda eða 60% á móti 40% kvenkylfinga og er það óbreytt frá síðasta ári. Þessi prósentutala mætti gjarna endurspeglast í þátttöku kvenkylfinga í mótum sem og í aukinni þátttöku ungra stelpna í golfi. E.t.v. stuðlar jafnræði í umfjöllun um golfleik beggja kynja að því að áhugi kvenna á þátttöku í golfi glæðist og eykst. Ábyrgð fjölmiðla er þar mikil.

Stefna Golf 1 er óbreytt eftir sem áður verður leitast við að hafa umfjöllun Golf 1 bæði um karl- og kvenkylfinga; bæði afrekskylfinga og almenna kylfinga, öldunga, sem og hina yngri og hvað hina yngri snertir mun Golf 1 að sjálfsögðu, líkt og undanfarin ár vera áfram sterkur miðill í umfjöllun um glæsileg börn og ungmenni, sem eru innan íslenskrar golfhreyfingar. Eflaust eigum við fremur fyrr en síðar eftir að sjá mörg þeirra á helstu mótaröðum heims!!!

Golf 1 var 2019 með fréttir um öll meistaramót golfklúbba á Íslandi 2019 s.s. birtast mun í annál á næsta ári, 2020.

Kylfingar, íslenskir sem erlendir, virðast kunna að meta breidd í fréttaflutningi um golf. Hana mun Golf 1 reyna að færa sístækkandi hópi lesenda sinna.

Golf 1 mun fara í nýársdagsfrí og munu nýjar golffréttir birtast strax á 2. degi nýs árs 2020.

Kærar þakkir fyrir frábærar viðtökur – Hafið það gott! – Komist öll slysalaust yfir ársskiptin með bestu óskum um heilbrigði og hamingju 2020.

Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.