Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 31. 2014 | 18:00

Gleðilegt nýtt ár 2015!

Golf 1 óskar lesendum sínum svo og öllum kylfingum og landsmönnum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2015,  með mörgum gleðistundum í golfi á komandi ári.

Gleðilegt nýtt ár 2015!!!

Gleðilegt nýtt ár 2015!!!

Golf 1 hefir nú verið starfandi í rúma 39 mánuði, þ.e. 3 ár , 3 mánuði og 6 daga og hafa á þeim tíma birtst rúmlega 11300 greinar, en þar af voru rúmlega 3600 skrifaðar á s.l. ári, 2013  sem þýðir u.þ.b. 10 greinar um golf á hverjum einasta degi ársins, sem er mesta fréttamagn á vefsíðu um golf á Íslandi.

Kylfingar innanlands, sem og vaxandi fjöldi erlendra kylfinga hafa tekið þessum yngsta golffréttavef Íslands framúrskarandi vel og umferð um vefinn ekkert nema aukist frá því hann hóf starfsemi 25. september 2011.

Á árinu var haldið áfram að skrifa greinar um Ísland, íslenskt golf og það sem íslenskt er á ensku og þýsku.   Golf 1 hefir nokkra sérstöðu, þar sem hann er eini golfvefurinn í heiminum , sem skrifar á ensku og þýsku um íslenskt golf.  Þess ber að geta að á sama tíma og skrifað hefir verið á ensku og þýsku á Golf 1 um íslenskt golf, hefir erlendum golfferðamönnum  fjölgað, sem sækja Ísland og íslenska golfvelli heim.

Nokkra gleði vekur það jafnræði sem er í lesendahóp Golf 1, þar sem karlkylfingar eru þó aðeins í meirihluta lesenda eða 54% á móti 46% kvenkylfinga.  Þessi prósentutala mætti gjarna endurspeglast í þátttöku kvenkylfinga í mótum sem og í aukinni þátttöku ungra stelpna í golfi.  E.t.v. stuðlar jafnræði í umfjöllun um golfleik beggja kynja að því að áhugi  kvenna á þátttöku í golfi glæðist og eykst. Ábyrgð fjölmiðla er þar mikil.

Það sem einkenndi liða golfsumartíðina hér á Íslandi var mikil vætutíð og voru skilyrðin til golfiðkunar ekki þær bestu.  Það er von að úr rætist á árinu sem er að fæðast í kvöld.

Stefna Golf 1 er óbreytt eftir sem áður verður leitast við að hafa . umfjöllun Golf 1  bæði um karl- og kvenkylfinga; bæði afrekskylfinga og almenna kylfinga, öldunga, sem og hina yngri og hvað hina yngri snertir mun Golf 1 að sjálfsögðu, líkt og undanfarin ár vera áfram sterkur miðill í umfjöllun um glæsileg börn og ungmenni, sem eru innan íslenskrar golfhreyfingar. Eflaust eigum við fremur fyrr en síðar eftir að sjá mörg þeirra á helstu mótaröðum heims!!!

Golf 1 var 2014 með fréttir um öll meistaramót golfklúbba á Íslandi 2014, sem á annað borð héldu slík mót og auk þess var af krafti  fylgst með krökkunum okkar í háskólagolfinu í Bandaríkjunum, en flest ef ekki öll eru meðal fremstu afrekskylfinga landsins. Óhætt er að segja að flestar þær greinar voru og eru vinsælt fréttaefni og mun Golf 1 áfram flytja fréttir um framangreint.

Ofangreint sýnir aðeins eitt að kylfingar, íslenskir sem erlendir, virðast kunna að meta breidd í fréttaflutningi um golf.  Hana mun Golf 1 reyna að færa sístækkandi hópi lesenda sinna.

Golf1.is fer nú í nýársdagsfrí og munu nýjar golffréttir ekki birtast fyrr en árla morguns á nýju ári, 2. janúar 2015.

Kærar þakkir fyrir frábærar viðtökur – Hafið það gott! – Komist öll slysalaust yfir ársskiptin með bestu óskum um heilbrigði og hamingju 2015.

Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.