Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2013 | 09:00

Glæsileg verðlaun frá BMW fyrir ása í Dubai

Þann 14.-17. nóvember n.k. fer fram mótið sem öllum bestu atvinnukylfingum Evrópu langar til að taka þátt í: DP World Tour Championship, sem fram fer á Jumeirah Estates í Dubaí.

Það sem lokkar er verðlaunaféð sem er upp á $ 8 milljónir auk veglegs bónuspottar upp á $ 3,75 milljónir.

En það eru ekki bara vonin um óhemjuhátt verðlaunaféð sem þeir heppnu 60 sem fá að taka þátt í mótinu geta hlakkað til.

Á par-3 17. holunni á Jumeirah golfvellinum er glæsileg BMW 650i Gran Coupé bifreið í verðlaun fyrir að fara holu í höggi!

En eins og það sé ekki nóg ….. AGMC-BMW Group innflytjandi bifreiðanna í Dubai mun sjá mótinu fyrir 48 BMW bifreiðum í 7 seríunni með bílstjóra til þess að keyra leikmenn frá hótelum sínum og á golfvöllinn og eins munu nokkrar bifreiðar standa yfirmönnum  og framkvæmdaaðilum mótsins til boða.