Skrúður 3. brautin á Garðavelli, Akranesi, öðrum uppáhaldsgolfvalla Guðmundar. GL fær 5 milljóna styrk frá Menntamálaráðuneytinu
Golfklúbburinn Leynir fékk fimm milljónir í styrk af safnlið Menntamálaráðuneytisins til uppbyggingar og undirbúnings fyrir Íslandsmótið í golfi, sem fram fer á Garðavelli í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem golfklúbbur fær styrk af þessum lið en m.a. fékk Akureyrarbær sjö milljónir til uppbyggingar og undirbúnins fyrir Unglingalandsmót UMFÍ í sumar og eins fékk Blöndósbær sex milljónir til uppbyggingar og undirbúnings fyrir Landsmót UMFÍ 50+.
Golfsambandið fagnar þessari ákvörðun að stjórnvöld styðji við uppbyggingu golfvalla og undirstriki þannig mikilvægi þeirra fyrir sveitarfélögin.
Veitir voru styrkir uppá rúmar 67 milljónir af þessum lið og skiptast þeir í eftirfarandi flokka:
Styrkir á sviði lista og menningar Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum. Styrkir á sviði menningararfs Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa að verndun menningarminja og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun og viðhalds íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.
Listir og menning: 02-982-190 – 36,3 m. kr. þar af 5 m. bundnar í gildandi samningum.
Menningararfur: 02-919-190 – 13,5 m. kr. þar af 3 m. bundnar í gildandi samningum
Landsmótsstaðir: 02-989-659 – 24,3 m. kr.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
