Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2015 | 09:25

GL: Áhugaverðar breytingatillögur MacKenzie á Garðavelli

Golfvallararkítektinn Tom Mackenzie hefur á undanförnum vikum unnið skýrslu fyrir Golfklúbbinn Leyni á Akranesi. Golfvallahönnuðurinn hefur nú lagt fram sínar tillögur að mögulegum breytingum á Garðavelli sem birtar eru á heimasíðu Leynis.Vinna Mackenzie fólst í því að gera úttekt á vellinum og koma með tillögur að breytingum.

Félagsfundur verður haldinn á Akranesi þriðjudaginn 24. nóvember n.k. þar sem að tillögurnar verða lagðar fram. Hægt er að kynna sér tillögurnar á heimasíðu Leynis.

Á meðal þeirra breytinga sem lagðar eru fram í skýrslunni má nefna:

1. braut vallarins verður sú sem er 10. braut í dag. Í rökstuðningi Mackenzie kemur fram að fjallasýnin frá nýjum 1. teig sé áhugaverð og rammi einnig inn lokaholuna sem er í dag sú 9.

Miklar breytingar verða gerðar á núverandi 7., 8., og 9. braut. Sú 8. verður lögð niður, 7. brautin verður nýtt undir tvær brautir, eina par 3 holu., og eina langa par 4 holu. Lokahola vallarins, sem er dag sú 9., verður að par 5 holu.

Töluverðar breytingar verða gerðar á núverandi 4. braut sem verður sú 13. í framtíðinni. Teigar verða færðir til norðurs, vatnstorfæra sett á brautina sjálfa og tjörnin við flötina verður lögð af.

Sjá má skýrslu MacKenzie í heild sinni með því að SMELLA HÉR: 

Texti: golf.is