Golfskáli Golfklúbbs Siglufjarðar að Hóli. Að baki golfskálanum er ein 2. brautin sem er ein sérstakasta braut sem Guðmundur hefir spilað Mynd: Golf 1. GKS: Golfsumarið 2015 hjá Golfklúbbi Siglufjarðar e. Ingvar Kr. Hreinsson
Golfsumarið 2015 byrjaði á svipuðum nótum og síðasta sumar. Völlurinn var blautur og veður kalt framan af sumri (sumarið kom reyndar ekki fyrr en í ágúst). fella varð niður tvö fyrstu mótin í Rauðkumótaröðinni og var fyrsta mót sumarsins ekki haldið fyrr en 17. júní, en það var þjóðhátíðarmót Everbuild í boði SR-Bygg. Á dagskrá sumarsins voru 18 mót. Rauðkumótaröðin var að vanda mjög vegleg, 10 mót voru haldin á miðvikudagskvöldum í sumar og veitt Rauðka glæsileg verðlaun fyrir 3 fyrstu sætin í hverju móti; sigurvegari mótaraðarinnar þ.e. stigameistari sumarsins varð Sævar Kárason, í öðru sæti varð Ingvar Hreinsson og í þriðja sæti hafnaði Þorsteinn Jóhannsson.
Meistaramót fór fram helgina 11.-12. júlí Úrslit urðu eftirfarandi:
Fyrsti flokkur karla
1 Ingvar Kr. Hreinsson 247 högg
2 Þorsteinn Jóhannsson 253 högg
3 Sævar örn Kárason 255 högg
Annar flokkur karla
1 Kári Arnar Kárason 272 högg
2 Arnar Freyr Þrastarson 278 högg
3 Ólafur Þór Ólafsson 291 högg
Flokkur kvenna
1 Hulda Guðveig Magnúsardóttir 292 högg
2 Ólína Þórey Guðjónsdóttir 294 högg
3 Ragnheiður H. Ragnarsdóttir 331 högg
Siglfirðingamótið var haldið í Kópavogi 23. ágúst. Þátttakendur voru 72. Þetta er í fimmta sinn sem mótið er haldið og er orðinn fastur liður í mótaksránni hjá Siglufjarðar elítunni. Stjórn GKS vill koma á framfæri kæru þakklæti til skipuleggjenda.
Framkvæmdum við nýja golfvöllinn miðar þokkalega, þó fannst okkur golfurum dragast úr hófi að byrja framkvæmdir í vor og fór að okkar mati heill mánuður forgörðum vegna þessa. En eftir að menn brettu upp ermar hefur ótrúlega miið gerst í sumar. Áætlanir um að búið yrði að sá í allan völlinn fyrir haustið gengu þó ekki eftir. Þar má um kenna að utanaðkomandi verktaki sem lofaði að koma strax eftir Verslunarmannahelgi til að harpa efni í síðustu tvær brautirnar kom ekki fyrr en um miðjan september. Vonir standa þó til að þetta seinki ekki verklokum.
Félagsmenn í GKS hafa mætt nokkrum sinnum í sjálfboðavinnu á nýja völlinn. Færa hefur þurft lítil tré, grjóttína og snurfusa hér og þar. Er fyrirséð að næsta sumar verið félagsmenn í GKS að leggja á sig töluverða sjálfboðavinnu til að stuðla að opnun sem fyrst.
Stjórn golfklúbbsins vill þakka þeim fjölmörgu styrktaraðilum sem haldið hafa tryggð við klúbbinn í gegnum tíðinna og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.
Ingvar Kr. Hreinsson, formaður GKS
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
