Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 13:45

GKS: Fjölgun iðkenda hjá Golfklúbbi Siglufjarðar

Með tilkomu hins nýja og glæsilega golfvallar á Siglufirði, Sigló golf, sem opnaði 11. júní 2018, hefir færst aukinn kraftur í golfíþróttina á Siglufirði og hefir iðkendum Golfklúbbs Siglufjarðar (GKS) fjölgað jafnt og þétt.

Margir kylfingar hafa komið til Siglufjarðar til að prófa nýja völlinn og hafa þeir verið sérlega ánægðir með hann.

GKS stóð fyrir Rauðkumótaröðinni í sumar og var leikið á miðvikudagskvöldum.

Þátttakendur í hverju móti hafa verið milli 20 til 30 og hefir þar m.a. mátt sjá nokkur ný andlit.

Þegar hafa verið haldin 10 mót; það síðasta 15. ágúst sl.

Ljóst er að nýi völlurinn hefir hleypt auknu lífi í golfíþróttina á Siglufirði.

Sem flestir ættu  að drífa sig í góðviðrið á Sigló og prófa hinn nýja og glæsilega Siglo golf –

Sjá má heimasíðu vallarins með því að SMELLA HÉR: 

Texti: Hellan Mynd: Siglo golf