Golfskáli Golfklúbbs Siglufjarðar að Hóli. Að baki golfskálanum er ein 2. brautin sem er ein sérstakasta braut sem Guðmundur hefir spilað Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2014 | 06:00

GKS: BÁS-mótið haldið 20. júlí n.k.

Glæsilegt opið golfmót verður haldið á Hólsvelli hjá Golfklúbbi Siglufjarðar sunnudaginn 20. júlí.

Keppt verður í karla- og kvennaflokki. Hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna 28.

Glæsileg verðlaun, gjafabréf í boði BÁS vélaleiga og steypustöð. Verðlaun verða veitt fyrir 1. – 3. sæti í karla og kvennaflokki.

 

Nándarverðlaun og lengsta drive.

Mótið byrjar kl. 10:00 og leikið verður samkvæmt rástímaskráningu. Fleiri rástímum verður bætt við ef núverandi rástímar fyllast.

Mótsgjald 2.000 kr.

Hér er tengill á á golf.is  SMELLIÐ HÉR:  þar sem hægt er að skrá sig í mótið.

Einnig er hægt að skrá í mótið með tölvupósti á vefstjoriGKS@gmail.com eða í síma 660-1028.

Sjá auglýsingu um mótið með því að SMELLA HÉR: