Nýja eyjuflötin á par-3 7. braut hins nýja Hólsvallar á Siglufirði. Mynd: Af Twitter síðu Edwins Roalds GKS: Af endurskipulagningu Leirutanga og framkvæmdum við nýja golfvöllinn
Edwin Roald, golfvallarhönnuður kemur ásamt Ármann Viðari Sigurðssyni, byggingarfulltrúa Fjallabyggðar, að endurskipulagningu á Leirutanga á Siglufirði.
Skv. tillögum þeirra segir m.a.
„Lagt er til að tjaldsvæði verði á norðurhluta tangans, einkum til að draga úr gönguvegalengd til og frá miðbæ Siglufjarðar, og að friðland fugla verði á sunnanverðri uppfyllingunni, þar sem fuglalíf er einna mest í dag. Kría og æðarfugl eru meðal mest áberandi tegunda og er hér gengið út frá því að finna þurfi heppilega og varanlega lausn sem tryggt getur að tjaldsvæðisgestir og krían geti átt samleið á tanganum án þess að úr verði of mikið ónæði,“ segir í umfjöllun Edwins og Ármanns.
Edwin Roald og félagar vinna einnig að nýjum golfvelli og hafa framkvæmdir staðið frá árinu 2012. Áætlað er að kostnaður við nýja völlinn muni nema 100 milljónum ÍSK.
Meðal skemmtilegra brauta á nýja vellinum er par-3 7. brautin, sem er sérstök að því leyti að um eyjaflöt verður að ræða, líkt og á 16. á Hamarsvelli í Borgarnesi eða 17. á TPC Sawgrass.
Á Twitter síður Edwins eru eftirfarandi meðfylgjandi myndir af framkvæmdunum:



- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
