Kristján Þór Einarsson, GKJ, 2014 Icelandic Champion in Match Play. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2014 | 10:29

GKJ: Styrktarmót Kristjáns Þórs – laugardaginn 13. september n.k. – Glæsilegir vinningar!!!

Styrktarmót Kristjáns Þór Einarssonar, GKJ verður haldið á Hlíðavelli, Mosfellsbæ, laugardaginn 13. september og verður keppt með Texas Scramble fyrirkomulagi. Mótsgjald er 8.000 kr. á lið.

Lið getur ekki fengið hærri forgjöf en sem nemur 2 höggum hærra en forgjafarlægri kylfingurinn fær. Sem dæmi ef leikmaður fær -4 í vallarforgjöf getur lið hans ekki fengið hærri forgjöf en -2.

Kristján Þór hefur átt góðu gengi að fagna á Eimskipsmótaröðinni í ár og unnið 3 mót á mótaröðinni, Íslandsmeistaramótið í holukeppni sem og tvö stigamót. Þá varð hann stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar. Kristján Þór hefur ákveðið að nú sé tíminn til að taka skrefið og reyna við atvinnumennskuna og mun hann taka þátt í úrtökumóti fyrir Norðurlandamótaröðina (Nordic Tour) sem hefst í Svíþjóð þann 30. september næstkomandi. Svona verkefni fylgir talsverður kostnaður og því er vonast eftir stuðningi sem flestra.

Verðlaunalisti:

1. sæti 2x Cobra burðarpoki, Puma síðbuxur, Puma polo bolur frá Hole in One

2. sæti 2x IQ þriggja hjóla kerra frá Golfskálanum

3. sæti  2x Ping i20 brautartré frá ÍSAM

4. sæti 2x Cleveland fleygjárn frá Erninum Golfverslun

5. sæti 2x 5kg kassar af þorskhnökkum frá Fiskmarkaði Íslands

14. sæti 2x Ostakörfur frá MS

30. sæti 2x Ostakörfur frá MS

58. sæti 2x Ostakörfur frá MS

Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum

Lengsta drive á 5. holu

Hlíðavöllur er í frábæru ástandi og við hlökkum til að taka á móti þér/ykkur og njóta dagsins saman í frábærum félagsskap!  SMELLIÐ HÉR og skráið ykkur í mótið!!!

Þeir sem sjá sér ekki fært að taka þátt í mótinu geta engu að síður styrkt Kristján Þór með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:

0528-14-120568

Kt 160347-7169