GKG: Sigurpáll Geir ráðinn golfkennari
Sigurpáll Geir Sveinsson hefur verið ráðinn til GKG sem golfkennari og verður megin hlutverk hans að efla kennslu og þjónustuframboð til hins almenna kylfings samráði við Íþróttastjóra GKG Úlfar Jónsson. Sigurpáll mun jafnframt aðstoða þjálfarateymi GKG við afreksþjálfun. Þetta kemur fram á heimasíðu GKG.
Að sögn Úlfars Jónssonar íþróttastjóra GKG, þá hefur aðstaðan verið með þeim hætti að við höfum ekki getað sinnt hinum almenna kylfingi sem skildi. Með nýrri íþróttamiðstöð gjörbreytast allar forsendur og munum við í vetur búa til hnitmiðuð prógröm fyrir hinn almenna kylfing og er ráðning Sigga Palla lykilþáttur í þeirri vegferð. Siggi Palli er jafnframt kærkomin viðbót í þjálfarateymi GKG og mun reynsla hans sem afreksþjálfara nýtast okkur vel.
„Ég hlakka mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá GKG“ segir Sigurpáll, „golfheimurinn er að fara í gegnum mikla tæknibyltingu þessi árin og GKG er að mínu mati í algjörum fararbroddi hér á Íslandi í þeim málum.“ Sigurpáll bætir við að með sveiflugreiningartækjum á borð við TrackMan sé hægt að nýta inniaðstöðu með allt öðrum hætti en áður tíðkaðist. Annars vegar er hægt að vinna í sveiflunni og nýta allar þær upplýsingar sem TrackMan gefur, hins vegar er hægt að spila golf í hermunum yfir veturinn sem eykur skemmtanagildið til muna.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
