GKG: Langstærsti klúbburinn í barna- og unglingastarfi
Langtíma stefnan skilar sér – GKG langstærst á Íslandi í barna og unglingastarfi.
Stefna GKG á Íþrótta og afreksstarfi hefur verið kýrskýr og er hornsteinn þeirrar fjölskyldustefnu sem klúbburinn stendur fyrir. Á meðfylgjandi línuriti má sjá fjölda einstaklinga undir 15 ára aldri sem skráðir eru í 11 stærstu golfklúbba landsins. GKG ber höfuð og herðar yfir aðra golfklúbba varðandi þátttökufjölda barna- og unglinga. Það er jafnframt athyglisvert að samanlagður fjöldi barna í golfklúbbunum á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. GR (Reykjavík), GK (Hafnarfjörður), GKj (Mosfellsbær) og GO (Garðabær) er nánast sá sami og fjöldi barna í GKG (smellið á myndina til að stækka hana).
GKG stendur jafnframt fyrir öflugum golfleikjanámskeiðum á sumrin og þar fara í gegn um 500 krakkar á hverju ári, auk þessu eru 67 einstaklingar á aldrinum 16 – 18 ára skráðir í klúbbinn. Það eru því um 900 börn og unglingar sem nýta sér þjónustu golfklúbbsins á hverju ári!
Ástæðan fyrir þessum frábæra árangri er eins og fyrr segir fastmótuð stefna GKG varðandi barna- og unglingastarfið ásamt mjög virkri afreksnefnd sem skipuð er sjálboðaliðum. Þáttur kennara GKG vegur þó þyngst, þar er valinn maður í hverju rúmi en GKG er með þrjá útlærða PGA golfkennara þá Úlfar Jónsson íþróttastjóra, Derrick Moore afreksþjálfara og Hlyn Þór Haraldsson, þeim til aðstoðar er Haukur Már Ólafsson PGA golfkennaranemi. Á sumrin bætast fimm þjálfarar í hópinn auk 18 afrekskylfinga sem sjá um golfleikjanámskeiðin.
Mikill fjöldi barna- og unglinga skilar sér þó ekki sem skildi í mótaraðirnar en GKG er í öðru sæti á eftir GR varðandi t.d. þátttakendafjölda á Íslandsbankamótaröðinni. Þó svo að við leggjum mikla áherslu á það í okkar starfi að börnin séu hjá okkur á sínum forsendum þá verður það engu að síður verkefni næsta árs að hvetja krakkana til að taka þátt í þeim mótaröðum sem hentar getustigi hvers og eins. Með þeim hætti kviknar vonandi neistinn sem leiðir af sér afrekskylfinga komandi kynslóðar (smellið á myndina til að stækka hana).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
