Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 13:00

GKG: viðurkenningar veittar fyrir afrek ársins 2014

Um helgina voru íþróttamönnum Garðabæjar veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2014.

Í þeirra hópi margir kylfingar úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Ingi Rúnar Birgisson fékk viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil í höggleik hjá strákum 14 ára og yngri.

Sigurður Arnar Garðarsson fékk svo viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni stráka 14 ára og yngri.

Einnig var liði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar sem sigraði sveitakeppni GSÍ í flokki Pilta 18 ára og yngri veitt viðurkenning fyrir frábæran árangur.

Ragnar Már Garðarsson fékk viðurkenningu fyrir þátttöku sína í í verkefnum A-landsliðsins.

 Heimild: golf.is