GKB: Jóhann endurkjörinn formaður
Aðalfundur Golfklúbbs Kiðjabergs var haldinn miðvikudaginn 11. desember. Á fundinn mættu 43 félagsmenn þar sem Jóhann Friðbjörnsson, formaður, flutti skýrslu stjórnar. Jenetta Bárðardóttir fór yfir reikninga klúbbsins og kom fram í máli hennar að hagnaður af rekstri klúbbsins var 856 þúsund krónur fyrir afskriftir og fjármagnsliði, en tap að frádregnum þeim liðum upp á 3,3 milljónir króna. Reikningar og skýrsla stjórnar voru samþykktar samhljóða á fundinum.
Fram kom í skýrslu stjórnar að um 2.000 færri hringir voru sráðir inn á www.golf.is en árið 2012. Má þar eingöngu kenna um slæmu veðurfari, sem var á suðvestur horni landsins mest allt sumarið.
Stjórnin lagði fram tillögu um að 5.000 króna gjald yrði innheimt af hverjum fullorðnum félaga, sem myndi vera inneign í veitingasölunni til úttektar á árinu 2014. Tillagan var samþykkt.
Jóhann Friðbjörnsson var endurkosinn formaður klúbbsins níunda árið í röð.
Aðrir í stjórn fyrir árið 2014 eru:
Jenetta Bárðardóttir gjaldkeri
Þorhalli Einarson ritari
Gunnar þorláksson meðstjórnandi
Snorri Hjaltason meðstjórnandi
Varamenn í stjórn eru:
Ágúst Friðgeirsson
Börkur Arnviðarson
Félagsgjöld
Tillaga stjórnar að félagsgjöldum 2014 var samþykkt og lítur þannig út:
Hjónagjald: 105.000
Fjölskyldugjald gildir fyrir hjón + börn að 16 ára aldri: 110.000
Einstaklingsgjald: 60.000
Hjón 67 ára og eldri: 90.000
Einstaklingar 67 ára eða eldri: 47.000
Hjón þar sem annar aðili er 67 ára eða eldri: 97.500
Börn/unglingar að 18 ára aldri: 20.000
Þeir sem eru í lánshæfu námi samkvæmt LÍ: 47.000
Golfbílagjald: 12.000
Innifalið í félagsgjöldum er 50% afsláttur af vallargjaldi fyrir gesti, eingöngu í fylgd með félagsmanni, virka daga, gildir 8 skipti. Fjaraðild án spilaréttar á vellinum, en þó innifalið einn hringur án endurgjalds, kr. 12.000. GSÍ aðild og aðgangur að golf.is.
Innifalið í fjölskyldugjaldi er: Hjón + börn eða barnabörn að 16 ára aldri.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

