Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2015 | 07:00

GKG: Formaðurinn fékk ás!

Guðmundur Oddsson formaður GKG gerði sér lítið fyrir nú á dögunum og sló draumahöggið þegar hann fór fjórðu brautina í Leirdalnum á holu í höggi.

Fyrr um daginn hafði hann dregið fram golfbolta og derhúfu sem hann fékk í gjöf frá afabarni sínu og nafna.

Bæði boltinn og húfan eru kyrfilega merkt liði þeirra í enska boltanum.

Óneitanlega kryddar sú staðreynd viðburðinn og blasti Chelsea merkið við formanninum þegar hann teigði sig eftir boltanum.

Golf 1 óskar við Guðmundi innilega til hamingju með draumahöggið!