Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2015 | 10:00

GKB: Kjörið að heimsækja Kiðjabergsvöll!

Kiðjabergsvöllur er einn flottasti golfvöllur landsins sem liggur í ægifögru landi með skemmtilegu útsýni og friðsæld í íslenskri náttúru eins og hún gerist best.

Nú þegar flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru með meistaramót í gangi er kjörið að heimsækja Kiðjabergsvöll, sem er opinn öllum þessa daga.

Völlurinn skartar nú sínu fegursta og segja gárungar að hann hafi líklega aldrei verið betri en nú. Settar hafa verið upp klukkur á öllum 18 teigum vallarins svo fólk geti betur fylgst með leikhraða sínum.

Þess má geta að félagsmenn Icelandair Golfers er heimilt að leika 5 hringi gegn 3.500 kr. vallargjaldi í sumar, mánudaga til fimmtudaga, gegn framvísun félagsskírteinis Icelandair Golfers.

Hægt er að bóka rástíma www.golf.is með því að SMELLA HÉR: