
GK: Anna Sólveig, Hildur Rún, Saga Ísafold, Högna Kristbjörg, Guðrún Brá og Sara Margrét spila á Írlandi á Opna undir 18 ára mótinu
Á heimasíðu GK er eftirfarandi frétt:
„Laugardaginn 21.apríl n.k. munu 6 stúlkur úr Golfklúbbnum Keili hefja leik á Opna Írska undir 18 (ára) stúlknamótinu. Stúlkurnar munu þar etja kappi við 70 stúlkur frá; Frakklandi, Skotlandi, Írlandi, Englandi, Svíþjóð, Þýskalandi og Noregi. Fyrirkomulag mótsins er þannig að á laugardeginum eru spilaðar 36 holur. Á sunnudeginu spila síðan þær 50 sem lægstu skori náðu á laugardeginum. Hluti af mótinu er jafnframt landskeppni þar sem 2 bestu skor hverrar 3 manna sveitar telja.
Stúlkurnar; Anna Sólveig Snorradóttir, Hildur Rún Guðjónsdóttir, Saga Ísafold Arnarsdóttir,Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Sara Margrét Hinriksdóttir, hafa æft af kappi í vetur undir styrkri stjórn þjálfara sinna, Björgvins, Sigurpáls Geirs og Jóhanns. Eins hafa þær verið á landsliðsæfingum hjá nýjum landsliðsþjálfara Úlfari Jónssyni. Stúlkurnar tóku jafnframt allar þátt í æfingaferð GK í mars s.l. til Spánar. Markmið stúlknanna eru að sjálfsögðu mismunandi en þátttaka í mótinu mun verða þeim öllum dýrmæt reynsla og góður undirbúningur fyrir komandi sumar.
Ferðin er farin með dyggum stuðningi GSÍ og Golfklúbbsins Keilis. Hlutaðeigandi vona að þetta sé einungis eitt af mörgum golfmótum sem íslenskir unglingar munu taka þátt í á næstu árum enda nauðsyn þess ljós að íslenskir kylfingar hljóti reynslu meðal jafnaldra í öðrum löndum.“
Sjá heimasíðu mótsins HÉR:
- ágúst. 13. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2022)
- ágúst. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022
- ágúst. 13. 2022 | 15:00 Evróputúrinn: Haraldur Franklín á -1 á ISPS Handa World Inv. e. 3. dag
- ágúst. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgit Henriksen – 12. ágúst 2022
- ágúst. 11. 2022 | 18:00 GSÍ: Fjöldi kylfinga á Íslandi aldrei verið meiri
- ágúst. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Helga Laufey Guðmundsdóttir – 11. ágúst 2022
- ágúst. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erna Elíasdóttir —– 9. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge