Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2017 | 07:00

GK: Til hamingju með 50 ára afmælið Keilir!!!

Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði fagnar 50 ára afmæli klúbbsins um mundir. Keilir var formlega stofnaður þann 25. apríl 1967. Af því tilefni var haldin vegleg fjölskylduhátíð í Hraunkoti á æfingasvæði Keilis, í gær, laugardaginn 6. maí.

Einnig hefir saga Keilis verið tekin saman fyrir fyrstu 10 árin og er þar fjallað um aðdragandann, stofnunina og starfsemina 1967-1977. Höfundur er Jóhann Guðni Reynisson en um myndasöfnun sá Magnús Hjörleifsson og Gunnar Þór Halldórsson braut um og hannaði útlit. Bókin er eingöngu gefin út á rafrænu formi og má nálgast hana á vef Keilis, www.keilir.is, frá og með 6. maí.

Keilir hélt viðamikla fjölskylduhátíð í tilefni 50 ára afmælis klúbbsins og þar var fjölmargt í boði.