Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2017 | 08:00

GK: Þorrablót haldið 20. jan. n.k.

Þorrablót Golfklúbbsins Keilis verður haldið  20. janúar n.k. (bóndadaginn) í Golfskála Keilis. Húsið verður opnað kl. 19:30

Að venju verður boðið upp á hákarl og ískalt brennivín í startið. Borðhald hefst kl. 20:00

Matseðill kvöldsins: Þorramatur, Gunnar Hansson leikari verður blótstjóri og Ingvar Jónsson verður á kantinum með gítarinn. Keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti.

Í fyrra var uppselt, aðeins verða seldir 65 miðar.

Miðaverð er kr. 5.000
Skráning á pga@keilir.is